Breytingar aldarinnarRögnvaldur Magnússon
Jæja, á morgun klára ég minn síðasta dag sem málarasveinn hjá Halla málara. Ég mun kveðja þetta starf með trega og söknuði. Út af því að ég hef unnið hjá halla í 6 sumarfríum. Núna verður breyting á. ég er að fara að mála fyrir annan mann.. Jónas Aðalsteinsson heitir kauði.. hann verður að vera fínn gaur, því að við mikið er að keppa. En á fimmtudaginn flýgur svo dáðasti sonur Bolungarvíkur til Reykjavíkur í ævintýraleit. Gulldrengurinn úr víkinn kveður í bili. Þetta verða breytingar aldarinnar, ekki bara fyrir mig heldur fyrir landið allt. En nóg um það.Þessa helgi má flokka sem einskonar brokeback helgi. Á föstudaginn fór ég á tónleika með herði torfa, hann var alveg merkilega góðiur. Svo á laugardaginn fór ég á Bændaglímuna, Þar sem mitt lið vann!! Eftir það fór ég á ball með Páli óskari. Það var helvíti gaman á því. Ég á eftir að rukka Hauk Vagnsson fyrir að stela peningunum mínum. Þetta kostaði mikið. á ballinu dansaði ég meira að segja alveg helling. Þegar ég var svo komin í vinnuna í gær fór ég svo að rifja upp. Þá man ég eftir því að ég dansaði við svona transdans lög. Þá fór ég aftur að hugsa um eitt. þeir sem búa til þessi lög, eru þeir tónlistamenn?? Geta þeir borið þann titil með rentu? eru þeir ekki bara tónamenn. Þeir sitja fyrir framan tölvurnar sínar og setja mismunandi bassalínur við gömul og rótgtóin lög eða bæta bara inn í bassatraktinn með þrunginni röddu:" YEE, put your hnds in the air like you just don´t care" og þá er lagið tilbúið. Þetta eru ekki tónLISTAmenn, þeir eru tónamenn. Ég skrifa meira um þetta efni síðar.
En ég var að tala við góðan vin minn sem er úr borginni óttans, hann var að segja mér að hann hefði áhuga á að koma með reglulega pisla hingað inn, en vildi skrifa undir einhverju dulnefni. ég kann ekki að láta nýjan notanda að síðunni þannig að hann skrifar með mínu nafni en ég finn eitthvað skemmtilegt nafn á kauða.
Skrifa eitthvað á morgun, þegar ég er búin að mála síðasta málið.
RM
Athugasemdir
1
Birgir Olgeirsson skrifar:
já víkin verður ekki sú sama.
27. september 2006 klukkan 20:12
3
Sammi skrifar:
Það verður TUSSUgaman að fá þig í bæinn kall!!!! TUSSU
28. september 2006 klukkan 17:25
